Gullmótið í kvöld verður hrikalega spennandi - og bíða
allir eftir svakalegum árangri í kvöld. Hérna er smá yfirlit í
ganni sem ég setti saman í sólinni!
100 m kalla
Asafa Powell – Hann vinnur
pottþétt – en spurning hversu góð brautin er – því ef brautin er
hröð þá sjáum við heimsmet í kvöld. Seinasta föstudag var hann að
reyna að setja heimsmet en var að reyna aðeins of mikið og það gekk
ekki upp. Svo ákvað hann að keppa ekki í Lausanne þar sem öll metin
voru sett á þriðjudaginn þar sem hann var eitthvað þreyttur –
spurning hvort hann hefði átt að hlaupa þar því allir aðrir voru að
bæta sig og setja met á þeirri braut??? – hann sagði sjálfur hafa
séð eftir að hafa ekki keppt þegar hann sá heimsmetið í 110
grindinni. En þetta verður spennandi hlaup og er mikil eftirvænting
hér þar sem ég er. En á morgun koma þau aftur hingað og þá verð ég
nú að smella nokkrum myndum og fá eiginhandaráritanir fyrir góða
vini og vandamenn.
Michael Frater
– Hefur verið að hlaupa allt í lagi – er
æfingafélagi Asafa og á silvur frá HM í fyrra. Vonandi
klikkar hlaupið saman hjá honum í kvöld og við sjáum hann
fara undir 10.00
Ég myndi
allaveganar ekki segja að neinn sé að challenga Asafa Powell, held
að mesta spennan sé hvort hann setji heimsmeit og kapphlaupið um
annað sætið. Mikið af góðum sterkum íþróttamönnum koma til greina
fyrir 2 sætið.
100 m kvenna
Marion Jones –
Hún hefur verið að hlaupa vel undanfarið og
haldið sig undir 11 sekúndunum. En hlaupið í kvöld verður á
milli hennar og Sherone Simpson frá Jamaica. Fólk hefur mjög
mixed tilfinningar til Jones þar sem hún er nú þegar komin
með Svindlara stimpilinn á sig, fyrir mitt leyti þá held ég
allaveganar ekki með henni, en það er bara mitt
álit.
Sherone Simpson –
Þessa vil ég sjá vinna Jones í kvöld, en hún
klikkaði aðeins á seinasta gullmóti og ákvað að hlaupa ekki
heldur í Lausanne þegar allir bættu sig, og hvíla sig og
einbeita sér að gullmótinu í kvöld. En hún er einnig í
æfingahóp Asafa Powells og segist líta mikið upp til hans og
virðist í fanta formi - á hraðasta tíma ársins.
Felix Allyson –
Er aðallega 200 metra hlaupari en ætlaði að
fókusa aðeins meira á 100 metrana í ár, það verður spennandi
að sjá hvað hún gerir.
Debbie Ferguson –
Hún er ennþá í gullpottinum, en er hálfpartin
dottinu úr sviðsljósinu með Jones og Simpson sér við
hlið.
Barber Me´Lisa –
Er heimsmeistari í 60 m innanhúss, en hefur
ekki alveg náð sér á strik í 100 metrunum.
400 m kalla
Jeremy Wariner
– Heims og ólympíumeistarinn og bætti sig á
seinasta gullmóti og enginn virðist eiga séns í hann,
Spurning með Xavier ... Þótt ég haldi að Wariner rústi þessu
og bara bæti sig í kvöld.
Xavier Cartier “The X-Man” -
Hljóp í Lausanne annan hraðasta tíma ever í 200
metrum (19.63) aðeins Michael Johnson hefur hlaupið haraðar. Hann
er fenginn á þetta mót til að challenga Wariner. En hann er að koma
beint úr háskóla, þetta er hans þriðja hlaup ekki í bandaríkjunum,
fyrst vann hann 100 metrana á einhverju móti á 10.11 sek, vann 200
metrana í þessu rosalega hlaupi um daginn og spurning hvað hann
gerir í 400 metrunum í kvöld. En hann er Bandarískur
háskólameistari í 100 m, 400m, 4x100 og 4x400 allt á sama mótinu.
En hann hefur verið að keppa fyrir skólann í Football og byrjaði
ekki að æfa fyrir frjálsarnar fyrr en í mars á þessu ári. Nike
gerði samning við hann upp á rúmar 70 milljónir krónur – Heldur
betur góður firsti paycheck ever. En þetta verður svakalegt hlaup
held ég.
Christopher Tyler
- hann er frá Canada og
hefur verið hér í æfingabúðum og lítur vel út og fílar sig
vel, gaman að fylgjast með honum, en hann á nokkur
verðlaun.
Þetta verður svakalegt hlaup – hlaup
kvöldsins án efa.
400 m kvenna
Sanya Richards –
á eftir að rústa þessu, ótrúlegt að horfa á
hana hlaupa, virðist bara skokka þetta. Spái að hún fái hluta
úr gullpottinum.
Ana Guevara –
Frá Mexikó, hún var einu sinni ósigrandi en
ekki lengur.
110 grind kalla
Terrance Trammell –
vona að hann vinni (æfingafélagi)– en hann
vann seinasta mót, virðist ekki vera svakaleg keppni sem hann
fær þar sem Chinaman ákvað að hlaua ekki eftir vel heppnað
heimsmet, né Dominique Arnold eftir sitt
Bandaríkjamet.
Robby Hughes –
Annar æfingafélgi minn hefur átt gott tímabil
þetta árið og vona ég að hann bæti sig í kvöld og skríði
undir 13.20 sek.
400 grind kvenna
Lashinda Demus - Verður án
efa sigurvegarinn spurning hvort hún fari undir 53
sekúndurnar.
En hún
fær mikla keppni frá öðrum góðum grindarhlaupruum,
Glover Sandra, Sheenta
johnson (hefur verið að æfa hérna í Ítalíu), Tiffany
Ross-Williams, Shauna Smith. Þetta verður svakalegt
hlaup.
100 grind kvenna
Veit
ekki hver vinnur þetta, en þetta verður svakalegt hlaup með
þvílíkri keppni og flestar mjög jafnar. Hlupu hraðasta tíma ársins
á seinasta gullmóti.
Langstökk kalla
Dwight Philips -
Hefur engan vegin gengið
nógu vel hjá honum í sumar og eru þetta vonbrigði fyrir alla
og sérstaklega hann. En hann er klár íþróttamaður og er að
læra af þessu – hann veit hvað hann hefði átt að gera meira
af – hoppum – en hann gerði ekkert af því – heldur fókusaði
hann of mikið á hraðann og 100 metrana. Enda lyftist hann
ekkert í loftinu þegar hann stekkur. Sem betur fer er ekkert
HM eða ÓL þetta árið, svo kannski þess vegna sem hann tók
þessu heldur rólega. En vonandi sparkar hann í rassinn á sér
í kvöld.
Langar
ekki að skrifa um hina þar sem ég held með Dwight... vona bara að
hann nái sér á strik í kvöld!
En jæja
ég mæli með að fylgjast með mótinu í kvöld...
Have fun
- vonandi gerir þetta mótið eitthvað skemmtilegra fyrir þá sem vita
ekki eins mikið!
Siljan
Out!